27.7.2011 | 20:19
Stelpustærðfræði
Ég verð bara að segja alveg eins og er.
Fyrst þegar ég las þessa frétt og skoðaði meðfylgjandi myndir, þá hélt ég í alvörunni að "fyrir" myndin væri "eftir" myndin.
Ég gat ekki betur séð en að þarna væri á ferðinni alveg þrælmyndarleg kona, með mjög fallegan vöxt. Og bara ekkert útá það að setja. Fyrir utan að á hinni raunverulegu "eftir" mynd þykir mér þetta vera of grannt. Og þess vegna skil ég ekki hvernig heilsufar hennar hefur batnað til muna á þessum 5kg.
En mér liggur samt forvitni á að vita, hvort það að þetta eigi að vera einhversskonar auglýsingarherferð fyrir þessa bók sem minnst er á í fréttinni?
"Þegar Ágústa Ósk tók prófið í upphafi átaksins fékk hún þá niðurstöðu að hún væri 60 ára. Nú 10 vikum síðar er líffræðilegur aldur hennar kominn í 24 ára. Það má því segja að Ágústa Ósk hafi yngst um 36 ár. Það er enginn smá árangur. "
Er þetta einhversskonar brandari? Er virkilega verið að reyna að sannfæra nokkurn mann, að þessari dömu hafi tekist að yngjast um 36 ár, með því að hrista af sér 5kg sem hún mátti varla við að missa? Svona stelpustærðfræði skil ég ekki.
Ég tek það fram að ég hef alla mína ævi talist mjög grönn og hef heyjað áralanga baráttu bara til þess eins að ná að þyngjast. Og þess vegna er mér fyrirmunað að skilja afhverju slíkur líkamsvöxtur telst æskilegur eða eftirsóknarverður á nokkurn hátt. Því aldrei hefur mér liðið vel með hann, heilsufarslega séð.
|
Fyrir og eftir myndir af Ágústu Ósk |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
13.4.2011 | 19:36
Það sem ég vildi sagt hafa...
... er einfaldlega:
|
Naglalakkaður drengur vekur hörð viðbrögð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.3.2011 | 09:42
Á ég að trúa því að..
.. ég hafi verið á undan Sigurði Haraldssyni í að blogga um þetta? Ég hlakka til að sjá hvaða hamförum hann spáir, hvað þetta varðar.
En þangað til, vil ég tileinka honum (og öðrum dómsdagsspámönnum) þetta lag.
|
Eldgos í 28 ár |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.11.2010 | 22:23
Niðurskurðurinn felst í...
... nýjum og endurbættum aðferðum.
Kirkjunnar menn fengu til sín sjálfboðaliða sem hefur af góðfúslegu örlæti sínu, boðist til þess að beita leikskóla- og skólabörn landsins þeim aðferðum sem einmitt björguðu honum í æsku.
Hér er myndband af honum á yngri árunum, þar sem hann gefur sýnishorn af þessum aðferðum, sem hann lofar svo í hástert.
Þess má geta, að þessi maður hefur einmitt boðið sig fram til Stjórnlagaþings, og bíður spenntur eftir að fá að komast inn í skólastofur landsins, til að afhomma börnin.
|
Skorið niður í rekstri kirkjunnar um 10% |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
6.9.2010 | 21:55
Þessa færslu...
.. tileinka ég aðila sem ég ætla ekki að nefna á nafn. En ef hann er á annað borð að lesa þetta, þá veit hann að þetta er til hans.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.8.2010 | 17:42
Jahá..
Nú geta kaþólikkar andað rólega.
Þrjátíu og þrír námuverkamenn sitja fastir í gull og silfurnámu, eftir að námugöngin féllu saman fyrir tuttugu og fjórum dögum síðan. Með einhverri heppni verða þessir menn komnir út í sólarljósið og í faðm fjölskyldu sinnar í tíma til þess að halda upp á jólin.
Á meðan yfirvöld, og björgunarstarfsmenn vinna hörðum höndum við að grafa mennina út, og sumar fjölskyldur hafa slegið upp tjaldbúðum í nágrenninu, situr páfinn í höll sinni og þykist biðja fyrir velferð þessara manna og fjölskyldu þeirra. Ef honum væri svona annt um velferð þeirra, þá leyfi ég mér að fullyrða að hann myndi e.t.v. senda eitthvað annað en hlýjar hugsanir og bænir.
Hann fullyrðir, að á meðan hann biður fyrir þeim, megi þeir hafa hugarró.
Undarlegt þykir mér að bænir einhvers karls með hatt, skuli vera þungamiðja þessarar fréttar..
En úr því að hann hefur skorist í leikinn, þá þarf alls ekkert að vera að senda birgðir, hjálparstarfsmenn eða fjármuni til þess að gera þessum mönnum lífið bærilegra á meðan á öllu þessu stendur. Þeir hafa bænir páfans. Hvað meira þurfa þeir?
|
Borun björgunarganga að hefjast |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.8.2010 | 15:18
Afhverju ekki bara...
...stíga skrefinu lengra og selja drottninguna sjálfa?
Þessi fjölskylda verður aldrei neitt annað en afæta á breskum skattgreiðendum. Þjóna sáralitlum tilgangi, fyrir utan að láta sjá sig endrum og eins og fjölga sér með hvoru öðru.
|
Seljum svani drottningarinnar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.8.2010 | 15:29
Athyglisvert!
Samkvæmt þessari frétt, eins og hún er skrifuð, má glögglega sjá að þeir sem eru eldri greinast seinna á ævinni en þeir sem eru ungir. Og þeir sem eru ungir lifa alltént lengur en þeir sem eru gamlir!
Það er hreinast sagt mikil viska í vísindum þessa dagana.
|
Greinast síðar með HIV og deyja fyrr |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)




skagstrendingur
viskan
snjolfur
beggo3
olijon
apalsson
rabelai
pallblondal
sveinnelh